Hoppa yfir valmynd

Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir 10 mánuðum síðan og því er hugsanlegt að innihald hennar eigi ekki lengur við.

5. maí 2023

Boðið upp á stafræn frumnámskeið

Samantekt

Vinnueftirlitið býður nú upp á stafræn frumnámskeið fyrir minni vinnuvélar.

Stofnunin hefur síðustu misseri unnið að því að færa námskeið sem hafa verið haldin í fjarfundi á Teams eða í staðkennslu yfir í nýtt netnám.

Markmiðið er að gera námsefnið aðgengilegra fyrir nemendur sem geta tileinkað sér það án tillits til staðsetningar á þeim hraða sem hverjum og einum hentar.

Námið er gagnvirkt og skiptist í fjóra hluta; vinnuvernd, eðlisfræði, vélfræði véla og vinnuvélar og notkun þeirra. Í náminu er notast við stutt myndbönd, skýringarmyndir, flettispjöld, spurningar og stutt verkefni þar sem nemendur þurfa að klára einn kafla áður en þeir byrja á þeim næsta. Nemendur hafa 30 daga til að klára námið.

Með þessum hætti vonast Vinnueftirlitið til þess að koma til móts við nemendur sem kjósa að sinna náminu óháð staðsetningu á þeim hraða sem hverjum og einum hentar. Lokapróf verða haldin hjá Vinnueftirlitinu á völdum prófsstöðum víðs vegar um landið. Þau fara fram á fimmtudögum klukkan 13, meðal annars í samvinnu við fræðslumiðstöðvar.

Vakin er athygli á því að frumnámskeið á öðrum tungumálum en íslensku verða áfram kennd í gegnum Teams að sinni en stefnt er að því að þau verði komin á stafrænt form á næstu mánuðum.

Stafrænt nám til viðurkenningar í vinnuvernd

Nám til viðurkenningar í vinnuvernd er einnig orðið stafrænt. Námið var áður kallað þjónustuaðilanámskeið og haldið einu sinni á ári en er nú opið árið um kring. Námið er ætlað þeim sem vilja gerast viðurkenndir sérfræðingar í vinnuvernd en einnig fulltrúum fyrirtækja í vinnuvernd, svo sem mannauðs- og öryggisstjórum.

Hægt er að sækja um viðurkenningu í tvö ár eftir að námi lýkur út frá þeirri sérhæfingu sem valin var.