Hoppa yfir valmynd

Áhættumatsnámskeið

Kennd er einföld og markviss aðferð við gerð áhættumats sem byggist á notkun gátlista Vinnueftirlitsins. Farið er yfir þrjú meginatriði áhættumatsins, það er skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði, áhættumat og áætlun um heilsuvernd og framkvæmd hennar.

Fyrir hverja?

Námskeiðið er fyrir alla sem þurfa að gera áhættumat og einnig þá sem hafa áhuga á að kynna sér gerð áhættumats á vinnustöðum eða vilja bæta við sig þekkingu á því sviði.

Ávinningur

Aukin þekking á vinnuverndarmálum sem auðveldar fyrirtækjum að hefja vinnu við áhættumatið eins og lög um hollustuhætti, aðbúnað og öryggi á vinnustöðum segja til um. Tækifæri á að bæta vinnuumhverfið og auka framleiðni fyrirtækisins.

Uppbygging og lengd

Fyrirlestur, myndir, myndbönd og hópverkefni.

Lengd

4 klst.