Verkstjóranámskeið – öryggismenning
Farið er yfir ábyrgð og skyldur verkstjóra á að allur búnaður sé góður og öruggt skipulag sé ríkjandi á þeim vinnustað, sem hann hefur umsjón með.
Um hvað er námskeiðið?
Vinnuverndarlögin (46/1980) eru kynnt sem og helstu reglur sem settar eru í samræmi við þau.
Á námskeiðinu er farið yfir alla helstu málaflokka vinnuverndarinnar s.s. hávaða, lýsingu, inniloft, efni og efnahættur, líkamlega áhættuþætti, félagslega og andlega áhættuþætti, forvarnir gegn einelti og áreitni á vinnustað, öryggi véla og tækja, atvinnusjúkdóma, vinnuslys og slysavarnir og notkun persónuhlífa. Auk þess er fjallað um ábyrgð á að gera áætlun um öryggi og heilbrigði fyrir vinnustaðinn þar sem áhætta í starfi er metin með tilliti til öryggis og heilsu starfsmanna og gerð er úrbótaáætlun sem forvarnaraðgerð á vinnustað.
Fyrir hverja?
Verkstjóra og alla stjórnendur fyrirtækja og stofnana.
Ávinningur
Þekking á ábyrgð og skyldum stjórnenda varðandi vinnu og vinnuumhverfi. Einnig þekking á vinnuverndarmálum og tækifæri til að bæta vinnuumhverfi, fækka slysum og veikindadögum og stuðla þannig almennt að betri líðan starfsmanna.
Uppbygging
Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrum, myndum,myndböndum og hópverkefnum.
Lengd
3 klst.