Hoppa yfir valmynd

Námskeið fyrir öryggistrúnaðarmenn & öryggisverði

Námskeið er netnámskeið sem er haldið reglulega yfir árið í samstarfi við Iðuna fræðslusetur. Þar er farið yfir alla helstu málaflokka sem varða vinnuumhverfi starfsmanna.

Skipulag

Vinnueftirlitið heldur reglulega námskeið um vinnuvernd fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði og aðra þá sem hafa áhuga á vinnuverndarmálum og vilja bæta hjá sér vinnuumhverfið. Námskeiðið er á kostnað atvinnurekanda, sbr. 8. og 9. gr. laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.

Námskeiðið er netnámskeið unnið í samstarfi við Iðuna fræðslusetur.

Námskeið eru í boði mánaðarlega samkvæmt auglýstri dagskrá og eru aðgengileg þátttakendum í tvær vikur. Það tekur um það bil tólf klukkustundir að fara í gegnum námskeiðið en hægt er að skipta því upp að vild og taka það á þeim tíma sem hverjum og einum hentar. Þó er hvatt til þess að námskeiðið sé tekið á vinnutíma. Námsgögnin verða aðgengileg þátttakendum við upphaf námskeiðs.

Námskrá

Á námskeiðinu er farið yfir alla helstu málaflokka sem varða vinnuumhverfi starfsmanna svo sem hávaða, lýsingu, inniloft og loftræstingu, efni og efnaáhættur, öryggi véla og tækja, líkamlega áhættuþætti, félagslega og andlega áhættuþætti, heilsuvernd á vinnustað, vinnuslys og slysavarnir og notkun persónuhlífa. Lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum eru kynnt sem og reglur sem settar eru í samræmi við þau.

Fjallað er um hvernig haga skuli gerð áætlunar um öryggi og heilbrigði á vinnustað. Leiðbeint um gerð áhættumats og áætlunar um heilsuvernd sem felur meðal annars í sér forvarnaáætlun, stefnu og viðbragsáætlun vegna eineltis, áreitni og ofbeldis á vinnustöðum.

Ávinningur af námskeiðinu er aukin þekking á vinnuverndarmálum og tækifæri til að bæta hjá sér vinnuumhverfið, fækka slysum og veikindadögum og stuðla almennt að betri líðan starfsmanna.

Námskeiðsgjald greiðist af atvinnurekanda samkvæmt reikningi eftir skráningu.

Frekari upplýsingar um námskeiðin, verð og skráningu er hægt að fá á skrifstofum Vinnueftirlitsins í síma 550 4600 eða á netfanginu vinnueftirlit@ver.is